Lög SKÓ

Lög Skotfélags Ólafsfjarðar

1. gr.

Félagið heitir Skotfélag Ólafsfjarðar (SKÓ). Lögheimili þess og varnarþing er Fjallabyggð. SKÓ er aðili að Íþrótta og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ), Ungmenna og Íþróttasambandi Fjallabyggðar (UÍF) og Skotíþróttasambandi Íslands (STÍ).

2. gr.

Tilgangur félagsins er að iðka og vinna að eflingu skotíþrótta á skotíþróttasvæði félagsins, kenna meðferð skotvopna og vinna gegn hvers konar gálausri meðferð þeirra.

Félagið býður upp á æfingar og keppni með haglabyssu, riffli, loftbyssu og boga.

3. gr.

SKÓ hefur leyfi fyrir bogfimiæfingum og keppni á skotíþróttasvæðinu.

Réttindi og skyldur félagsmanna

4. gr.

Almennir félagar eru þeir sem greitt hafa árgjald og kynnt sé lög félagsins.

Heiðursfélagar: Geta þeir einir orðið sem verið hafa í félaginu, unnið því mikið gagn og verið því til sóma, þeir greiða engin árgjöld en njóta þó sömu réttinda og almennir félagar. Stjórn félagsins verður að flytja tillögu um heiðursfélaga á aðalfundi og verður hún að vera samþykkt með 2/3 atkvæða.

Aukafélagar: Teljast þeir sem ekki greiða nema ½ árgjald, en það geta verið makar og börn almenns – eða heiðursfélaga og hafa sama lögheimili. Einnig þeir sem búa fjarri Fjallabyggð og eiga því erfitt með að nota aðstöðu félagsins. Aukafélagar eru kjörgengir, hafa tillögurétt en njóta ekki sömu fríðinda og almennir félagar. Sækja þarf um að gerast aukafélagi.

Stjórn skotíþróttasvæðisins skal taka til mál félagsmanns, sem gerist brotlegur á umgengnis- og öryggisreglum félagsins, lögum og samþykktum UMFÍ, ÍSÍ, UÍF eða STÍ.

Brot á reglum getur varðað brottrekstri af skotíþróttasvæðinu og endurtekin brot, brottrekstri úr félaginu.

5. gr.

Sérhver félagsmaður skal greiða félagsgjöld. Upphæð árgjalds skal ákveðin af stjórn félagsins. Heimilt er að hefja innheimtu félagsgjalda í janúar en síðasti eindagi er 1. mars ár hvert. Lendi félagsmaður í vanskilum við félagið, skal hann njóta réttinda til næsta aðalfundar. Skuldi félagsmaður tvöfalt árgjald skal hann tekinn af félagaskrá nema hann tilgreini ástæðu sem stjórnin tekur gilda. Áður en félagsmaður er tekinn af félagaskrá skal honum tilkynnt það bréflega með viku fyrirvara. Sé félagsmaður tekinn af félagaskrá vegna skulda og óski eftir að ganga í félagið á ný, skal hann greiða áfallin gjöld (þó ekki árgjöld) til félagsins.

Félagsmenn sem náð hafa 67 ára aldri greiða hálft félagsgjald. Þeir njóta þó fullra réttinda.

Félagsmenn sem flytja búferlum sökum vinnu eða náms um stundarsakir greiða aðeins 1/2 árgjald á meðan en njóta fullra réttinda.

6. gr.

Iðkandi getur keppt á mótum fyrir hönd SKÓ. Félagið getur styrkt iðkanda til keppnisferða innanlands. Sækja þarf um til stjórnar á þar til gerðum eyðublöðum.

Stjórn SKÓ og störf hennar

7. gr.

Stjórn félagsins er skipuð, formanni, gjaldkera, ritari og tveimur meðstjórnendum. Kjörtímabil stjórnar er eitt ár. Kjósa skal hvern mann sérstaklega. Varamenn eru tveir. Allir félagsmenn eru kjörgengir til stjórnarsetu.

Einnig skal tilnefna einn fulltrúa og einn til vara til stjórnarkjörs hjá UÍF.

8. gr.

Félagið rekur skotíþróttasvæði. Stjórn félagsins er heimilt að ráða starfsmann á skotíþróttasvæðið til að sjá um innheimtu og rekstur. Stjórnin setur reglur um æfingatíma, öryggi og umgengni á svæðinu og eru allir skyldugir að fara eftir þeim.


9. gr.

Stjórnin heldur stjórnarfundi eftir þörfum. Formaður skal boða til þeirra með a.m.k. tveggja daga fyrirvara. Heimilt er að boða stjórnarfund með skemmri fyrirvara ef um knýjandi mál er að ræða. Meirihluti stjórnar getur óskað eftir stjórnarfundi og er formanni skylt að verða við slíkri ósk, enda sé hún skrifleg og undirrituð af meirihluta stjórnar. Einnig getur formaður hverrar nefndar kallað saman fund sinnar nefndar með þeim stjórnarmönnum félagsins sem hann óskar til þess að ræða mál sem varða nefndina sérstaklega.


10. gr.

Reikningsár félagsins er frá 1. janúar til 31. desember ár hvert. Eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund skulu reikningar og ársskýrslur fyrir síðasta ár liggja fyrir.

Aðalfundur

11. gr.

Aðalfund skal halda á tímabilinu frá 31. jan -1.apriíl.Til hans skal boða með a.m.k. viku fyrirvara með auglýsingu eða með fundarboði til félagsmanna. Aðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað. Auka aðalfund skal halda ef stjórnin telur það nauðsynlegt. Einnig skal halda auka aðalfund ef fjórðungur félagsmanna óskar þess skriflega. Stjórninni ber að halda slíkan fund innan mánaðar frá móttöku beiðninnar. Sömu reglur gilda um auka aðalfund og aðalfund. Félagi sem vill gera tillögu um lagabreytingar eða annað til aðalfundar, skal senda stjórn félagsins þær skriflega, fyrir lok janúar.

Á aðalfundi skulu eftirtalin mál tekin fyrir:

  1. Fundarsetning
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Skýrsla stjórnar
  4. Reikningar félagsins bornir upp til samþykktar
  5. Skýrslur nefnda
  6. Kosning stjórnar sbr. 7. gr.
  7. Kjör í nefndir og skoðunarmanna
  8. Lagabreytingar
  9. Önnur mál
  10. Fundarslit.

12. gr.

Til almennra félagsfunda skal boðað með minnst tveggja daga fyrirvara með auglýsingu eða skriflegu fundarboði. Stjórninni er skylt að halda almennan félagsfund ef fjórðungur félagsmanna óskar þess skriflega.

Nefndir og önnur ákvæði

13. gr.

Nefndir SKÓ eru fjáröflunarnefnd, mótanefnd og vallarnefnd og starfa þær í umboði stjórnar.

14. gr.

Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi með samþykki 2/3 hluta atkvæðisbærra fundarmanna og skal eignum þess að uppgerðum skuldum ráðstafað til UÍF.

15. gr.

Lögum þessum má ekki breyta nema á lögmætum aðalfundi og með samþykki 2/3 hluta viðstaddra félagsmanna. Það sama á við um slit á félaginu.

16. gr.

Að öðru leyti gilda lög ÍSÍ, UMFÍ, UÍF og STÍ.

Lög þessi voru samþykkt á auka aðalfundi 16 okt.2018.

Guðmundur Á. Kristinsson, Inigundur Loftsson, Rögnvaldur K. Jónsson